Portugal Basketball Festival í Lissabon
Skemmtilegt körfuboltamót í Lissabon - sól og körfubolti

Portugal Basketball Festival – Körfuboltamót í Lissabon

22. - 29. júní 2027

Mótsdagar 26.–27. júní 2027
 
Alþjóðlegt körfuboltamót fyrir yngri flokka sem fer fram í Lissabon í Portúgal.
Frábært tækifæri til að sameina körfubolta, sól og skemmtilega liðsupplifun í einni ferð!
Portugal Basketball Festival er alþjóðlegt körfuboltamót þar sem lið frá fjölmörgum löndum koma saman og keppa við lið með ólíkan bakgrunn og leikstíl. Mótið er haldið í Lissabon og er ætlað bæði stelpu- og strákaliðum.
 
Aldursflokkar
U15 – U17 – U19 – U23
Keppt er í átta flokkum, fyrir stelpur og stráka.
Fyrirkomulag mótsins
Leikið er í riðlakeppni og að henni lokinni taka við úrslita- og staðsetningarleikir.
Lágmark 4 leikir á hvert lið.
Leikir fara fram í íþróttahúsum í Lissabon og nágrenni og eru dæmdir af viðurkenndum dómurum.
Auk körfuboltans er lögð áhersla á upplifun liðanna. Setningarathöfn fer fram við upphaf mótsins þar sem liðin ganga inn undir fána síns lands og á mótssvæðinu verður Festival Village með afþreyingu og skemmtun.
 
Innifalið í ferðinni :
Flug til og frá Lissabon
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Gisting í 7 nætur á 4* hóteli
 
Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu
Mótsgjald og skráning leikmanna
Akstur á milli hótels og keppnisstaða
Aðstoð á staðnum
 
Lissabon hentar einstaklega vel fyrir hópferð þar sem hægt er að sameina keppni við sól, strandlíf, borgarlíf og skemmtilega samveru utan vallar.
Körfubolti, sól og alþjóðleg keppni – allt í einni ferð!
 
Hafið samband við Visitor til að fá nánari upplýsingar og tilboð fyrir ykkar lið.
sport@visitor.is
 
Fyrirspurn um æfinga- og keppnisferð