Sheraton Cascais hótelið er mjög góð 5 stjörnu gisting staðsett við golfvellina á svæðinu. Það eru um 5 km í miðbæ Cascais. Hótelið hefur allt nýlega verið endurnýjað. Garðurinn er snyrtilegur með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu. Heilsulind, líkamsræktaraðstaða og barnaklúbbur eru á hótelinu. Á hótelinu er mjög góður japanskur veitingastaður Yakuza og Terra Glass veitingastaðurinn býður upp á ljúffenga miðjarðarhafsrétti.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Sheraton Cascais hótelið er mjög góð 5 stjörnu gisting staðsett við golfvellina á svæðinu. Það eru um 5 km í miðbæ Cascais. Hótelið hefur allt nýlega verið endurnýjað. Garðurinn er snyrtilegur með sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu. Heilsulind, líkamsræktaraðstaða og barnaklúbbur eru á hótelinu. Á hótelinu er mjög góður japanskur veitingastaður Yakuza og Terra Glass veitingastaðurinn býður upp á ljúffenga miðjarðarhafsrétti. Í boði eru allt frá premium standard herbergjum upp í premium 4 herbergja svítur. Herbergin og svíturnar eru huggulega innréttaðar í nútímalegum og ljósum stíl. Í öllum herbergjum eru lítill eldhúskrókur, loftkæling, öryggishólf, svalir eða verönd. Mjög góð gisting og hentar einstaklega vel fyrir þá sem langar að spila nokkrar golfhringi. Sheraton hótelið er staðsett í 38 km fjarlægð frá flugvellinum í Lissabon.